Þórir hefur unnið við bókhald síðan 2012 og hefur tekið nokkur námskeið í bókhaldi, núna síðast diplo námskeið frá Promennt , einnig námskeið tollskýrslugerð, námskeið og próf í exel-word og powerpoint, endurmenntun háskólans, lög um skuldabréf, lög og reglur um sölu fasteigna. Þórir hefur séð um fyrirtækjarekstur frá árinu 2000-2007. Þórir er lærður stýrimaður frá Stýrimannaskólanum Reykjavík. Viðurkenndur bókari HÍ 2016-2017 .
Áhugamál Þóris eru bæjarmálin hér í Grindavík, Þórir hefur verið að starfa með Grindavíkurlistanum frá síðustu bæjarstjórnakosningum, hann er gjaldkeri listans. Grindavíkurlistinn er í meirihlutasamstarfi með Sjálfsstæðismönnum hér í Grindavík. Þórir er aðalmaður í Skipulagsnefnd, ( gamla byggingarnefndin ) aðalmaður í HES ( Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja ) varamaður í Umhverfis og ferðamálanefnd Grindavíkur, varamaður í félagsmálanefnd, og varaformaður í Reykjanesfólksvang.